Búið að kaupa Róbert Spanó.

Róbert Spanó forseti lagadeildar er EKKI að hlýða ríkisstjórninni. Um daginn sagði hann dóm Hæstaréttar réttann og núna vill hann heldur ekki skipa 25 menningana á Stjórnlagaþing.

Þetta er ekkert annað en uppreisn gegn Jóhönnu - og uppreisn gegn henni er ekki heppileg - reyndar mjög slæm.

Það verður fróðlegt að fylgjast með ferli hans - mannsins sem vill fara að lögum og er ( eftir því sem ég best veit ) ekki skráður í nokkurn flokk.

Það fer því ekki á milli mála að slíkur maður hlýtur að vera á spenanum hjá Valhöll eða í Hádegismóunum -- eða hvað?


mbl.is Óheppilegt að skipa fulltrúa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þetta er væntanlega grín hjá þér

Ef það verður kosið aftur, þá verður kosningaþáttakan í mesta lagi 20-25%. Ríkisstjórnin tekur ekki þá áhættu.

Skipun nefndar með 25-menningunum er aulalegt plan.

Þá eru tvær leiðir eftir; að hætta við allt saman, eða að Alþingi geri tillögu um stjórnarskrárbreytingu.

Síðarnefnda atriðið er reyndar vafasamt vegna umræðunnar um "opið lýðræði", sem er í tísku núna.

Gunnar Th. Gunnarsson, 1.2.2011 kl. 02:29

2 Smámynd: Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir

Nota upplýsingar úr þjóðfundinum og skipa menn eins og Róbert Spanó, Sigurð Líndal og fleiri í 7 manna nefnd og pússla henni saman. Ég var hvort eð er mikið hrædd um að of miklu væri breytt í skránni. Vandamálið hingað til hefur ekki verið stjórnarskráin heldur að ekki sé farið eftir henni.

Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir, 1.2.2011 kl. 06:05

3 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Já Gunnar - þetta er grín hjá mér en við getum átt von á svona þvættingi frá stjórnarliðum - sem myndu meina þetta.

Ég er hlyntur hugmynd þinni Adda - þessir 2 ásamt t.d. fyrrverandi forseta lagadeildar  - 1-2 fyrrverandi dómurum við Hæstarétt - siðfræðingi og einhverjum aðila sem er með svipaða þekkingu á Stjórnarskránni og Sigurður og Róbert.

Svona hópur myndi að mínu mati skila mun markvissari niðurstöðum.

Ólafur Ingi Hrólfsson, 1.2.2011 kl. 11:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband