Morð - sjálfsvíg

Vissulega eru þetta góðar fréttir -

það sorglega er hinsvegar sú staðreynd að þau hefðu átt að vera mun færri.

Akstur undir áhrifum er bæði tilraun til morða og sjálfsmorðs.

Fjölmiðlar - sem ráða yfir mjög hæfu þáttagerðarfólki virðast ekki hafa nokkurn áhuga á forvarnarstarfi - hvorki í umferðinni né á öðrum sviðum.

Æsifréttir - þær eru birtar - ofbeldi - óábyrgt tal þeirra sem vilja koma sér á framfæri og vita að slíkt fellur að starfsháttum fjölmiðla - jafnvel er farið til Afríku ef einhver hefur skotið einhvern þar eða jafnvel sagt frá bílslysum þar.

5 gargandi vörubílstjórar - þá er hægt að senda hóp til þess að taka slíkt upp.

1. maí ár hvert eru Sniglar með hópkeyrslu - til þess að minna á að bifhjólafólki fer þá fjölgandi í umferðinni og til þess að minna á öryggi í umferðinni -

Síðast voru 1200 hjól í keyrslunni en fjölmiðlar höfðu ekki áhuga - 1.200 hjól - það er glæsileg sjón og frábært myndefni - en umfram allt áminning til okkar allra að við sem erum á hjólum eigum að fara varlega og s´na tillitssemi - jafnframt ákall til annara að gera slíkt hið sama.

Eigum við ekki að taka höndum saman og fækka banaslysunum enn frekar ?

Ein spurning - hve mörg voru alvarleg slys í fyrra og árin þar á undan?

Ólfur I Hrólfsson


mbl.is Sjaldan færri látist í umferðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Morten Lange

Sæll Ólafur,

Hjartanlega sammála þessu sem þú segir um ölvunarakstur. Og líka áhugaleysi fjölmiðla á forvörnum af ýmsum toga, og reyndar öðrum góðum málefnum.  Sem lítið dæmi þá er afar lítill áhuga á hjólreiðamenn þegar þeir fara í hjólalest líka.  

Varðandi slysatölur þá er þó nokkuð af gögnum  til hjá Umferðarstofu :

http://us.is/id/4682

http://us.is/id/4720

Morten Lange, 2.1.2009 kl. 17:29

2 identicon

Bestu þakkir til þín.

Eins og sést er ekki mikill áhugi á forvörnum en ef eitthvað gerist sem forvarnir hefðu geta komið í veg fyrir stendur ekki á gagnrýninni.

Bestu kveðjur og gleðiegt á

Ólafur I Hrólfsson

Ólafur i Hrólfsson (IP-tala skráð) 3.1.2009 kl. 00:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband