Kostnaður pr. bíl ???
3.10.2010 | 10:04
Margir virðast velta þessari spurningu fyrir sér.
Ef þú slasast lífshættulega og kemst ekki vegna fannfergis og óveðurs - hvernig reiknar þú þá út - pr. bíl - (sem kemst ekki vegna ófærðar ) þyrlu ( sem kemst ekki heldur vegna veðurs ?
Ef þú býrð í afskekktu byggðarlagi og veður hamlar flutningi nauðsynjavara - hvernig metur þú þá pr. bíl?
Ef þú þarft að standa í margra klukkustunda snjómokstri í 4-7 metra háu fannfergi á þjóðveginum -til þess s að koma barni þínu til læknis - hvernig reiknar þú þá út pr. bíl - að ekki sé talað um ef þú kemst of seint með barnið til læknis.
Þessi göng eru ekki bara til þess að stytta vegalengdir um allt að 160 km á milli staða - þau eru ekki síst öryggisatriði.
Til hamingju með göngin.
![]() |
Búið að opna Héðinsfjarðargöng |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þvinga Íslendinga - hvar eru ráðamenn þjóðarinnar?
3.10.2010 | 09:37
Stuan Stevenson vill " þvinga Íslendinga til að koma að samningaborðinu "
Þarna er vinnubrögðum þingmanna ( ráðamanna ) Evrópuþingsins rétt lýst - þetta eru aðferðir breta og hollendinga - þetta eru aðferðirnar í Evrópusambandinu.
Friðrik á heiður skilinn fyrir að halda uppi vörnum - en hvar er ráðherra sjávarútvegsmála?
Hvar er ráðherra utanríkismála - hvar er forsætisráðherra þjóðarinnar?
Ætlar ekkert af þessu fólki að bregðast við linnulausum árásum og hótunum ?
Okkur er hótað fyrir að veiða innan eigin lögsögu?
Dettur einhverjum í hug að róðurinn verði okkur léttari innan "skjaldborgar" esb?
![]() |
Íslendingar eru ekki þorparar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þessar hækkanir munu ekki skila neinu.
2.10.2010 | 16:22
Sú reginfirra stjórnvalda að skattahækkanir skili sjálfskrafa peningum í ríkissjóð er undarleg.
Það sem gerist verður einfaldlega það að fólk fer í felur með sitt fé - dregur úr innkaupum - Fjármagnstekjur munu helst koma af innistæðum gamalmenna sem hafa ekki tök á því að fela sitt fé erlendiss - þeir sem eru virkilega að fá fjármagnstekjur munu fjarlægja sitt fé - fara með það út.
Niðurstaðan verður lækkun á tekjum ríkisins af þessum lið - annað verður á sömu lund - nema fríhafnargjaldið - það er sérstakt - en fólk kaupir þá bara minna.
Heildarniðurstaðan af þessum hækkunum sem og öðrum - fólk felur sitt fé - dregur úr neyslu - sjá hækkanir á áfengi - tóbaki og bensíni - og ríkið verður af tekjum.
Svo er atvinnuleysið vel til þess fallið að draga úr eyðslu -- niðurstaðan - allar aðgerðir ríkisins miða að lækkun ríkistekna og gjaldþroti heimilanna.
![]() |
Hækkun skatta skilar 11 milljörðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Til hamingju
2.10.2010 | 07:13
Úrsögn þeirra þriggja er gleðiefni fyrir VG - þarna sannast það að innan VG er til fólk með samvisku -
Einhver fjöldi yfirgaf Sf um daginn og mun sú tala vera að hækka.
![]() |
Þrír trúnaðarmenn segja sig úr VG |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nei takk
2.10.2010 | 07:10
![]() |
„Þar með var niðurlæging Alþingis fullkomnuð“ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Uppkast
2.10.2010 | 07:07
![]() |
Fjárlögin uppkast fremur en stefnumörkun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)