Færsluflokkur: Dægurmál
Þá er þessi gnarrDagur runninn upp.
2.1.2011 | 13:37
Bestu þakkir til ykkar félaganna fyrir þessa ákvörðun sem og aðrar sem til niðurrifs horfa hér í bæ.
Þetta er ykkur samboðið eins og aðrar hækkanir og skerðingar -
Sundferðin kostar nú 450 krónur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Móðgunargirni karla/kvenna-Murtan og Össur.
2.1.2011 | 13:34
Ég skil Lilju vel - hún hefur þann sið að leggja fram sín mál af festu - öryggi og er kurteis í samskiptum við fólk.
Mættu ýmsir - m.a. í hennar flokki taka sé hana til fyrirmyndar.
Í gegnum tíðina hefur oft verið talað niður til kvenna og eðlilegt að hún sitji ekki undir því að ráðherra ( jafnvel Össur ) tali niður til hennar. Enda óásættanlegt.
Karlar hafa haft þennan sið í áratugi og taka ekki mark á mönnum eins og Össuri. Hvorki fyrir klukkan 5 eða eftir klukkan 5.
Ef Össur er ekki betur máli farinn en svo að hann þurfi svona samlíkingar ætti hann að gera það sem okkur flestum finnsta að hann hefði átt að gera fyrir löngu - halda sér sama - eða tjá sig með sama hætti og Þingvallamurtan - gapa - án þess að gefa frá sér hljóð.
Telur að Lilja eigi að sýna Össuri skilning | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Jóhanna og sannleikurinn.
30.12.2010 | 14:53
Bara smá upprifjun -
Munum ekki hækka skatta
- Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra svarar fyrirspurn á Alþingi 9. febrúar 2009 um hvort ríkisstjórnin hyggist hækka skatta
Jóhanna Sigurðardóttir: Ekki kostur að fresta Icesave um vikur eða mánuði- Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í umræðum á Alþingi um Icesave-frumvarpið 30. desember 2009
Jóhanna blæs á framsóknarsögur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Embættismenn um embættismenn
30.12.2010 | 10:28
Frá embættismönnum til embættismanna -
Hin eilífa hringrás fólks sem skipar sig í hin ýmsu embætti og nefndarstörf sem upp koma - taka ákvarðanir um það hvaða gögn ráðherrar fá að sjá eða ekki að sjá - og sitja límráðningu eins lengi og þeim sýnist.
Er ekki kominn tími á breytingar á þessu ferli? Verður einhver framþróun fyrr en þetta verður tekið fyrir og embættismönnum gert ljóst að þeir vinna undir stjórn kjörinna fulltrúa en eru ekki yfirmenn þeirra?
Embættismenn ákváðu að ráðherrar fengju ekki að sjá lögfræðiálit sem höfðu afgerandi áhrif á lántökur upp á hundruðir milljarða - hversu mörg eru málin sem embættismenn stjórnast í sjálfir án aðkomu kjörinna fulltrúa? Hvaða áhrif hafa þær ákvarðanir haft?
Er ekki rétt að skoða þessi mál STRAX ? Guðlaugur Þór krefur forsætisráðherra um svör og segir hana hafa farið með ósannindi - getur verið að ráðherrann hafi sagt allt samkvæmt bestu vitund en embættismenn ekki sagt ráðherranum satt?
Gera alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð ráðuneytis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ef ekki fyrr ???
30.12.2010 | 10:11
Magnað - kubbarnir koma í janúar - ef uppsetningu lýkur í januar er það þá ekki líka áður en jínímánuður rennur sitt skeið?
Sigurður segir þá nýju (KUBBANA) væntanlega til landsins eftir þrjár vikur og er áætlað að lokið verði við að setja þá upp áður en júnímánuður rennur sitt skeið, ef ekki fyrr.
Er ekki allur tíminn fram að lokum júní FYRR?
600 tonnum af stálsteypukubbum skipt út í Hörpu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sérkennileg frétt.
30.12.2010 | 10:02
1875 kg í hverjum sjópoka??? Hraustir menn -
991 smáum pökkum - rétt rúm 6 kg. í hverjum pakka ???
6 kg af þessu efni þykir verulegt magn svona venjulega ---
Er ekki eitthvað að í framsetningu fréttarinnar?
Sex tonn af kókaíni gerð upptæk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Dauðarefsing.
30.12.2010 | 09:54
Vissulega er almenningur á móti dauðarefsingu -(vona ég ) EN - þegar hópar taka sig saman um að fremja hryðuverk - hvort sem er í Danmörku eða annarsstaðar er þá fælingarmáttur dauðarefsingarinnar ekki það eina sem dugar - og þá - ef hryðjuverk er samt framið - að framkvæma þá refsinguna strax að uppkveðnum dómi.
Ekki spurning hvort heldur hvenær | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Ábyrgð fjölmiðla
30.12.2010 | 04:23
Maðurinn alvarlega slasaður
--------------------------------------------------------------------------------
Verður undir eftirliti í nótt
Innlent | mbl.is | 30.12.2010 | 0:20
Maðurinn sem fluttur var með TF-LIF, þyrlu Landhelgisgæslunnar, til aðhlynningar á Landspítalann eftir umferðarslys á Holtavörðuheiði á níunda tímanum í gærkvöldi er ekki alvarlega slasaður, að sögn vakthafandi læknis.
---------------------------------------------------------------------------------
Um daginn voru fjölmiðlar gagnrýndir fyrir algjört tillitsleysi í fréttaflutningi af banaslysi fyrir norðan.
Ekki finn ég þessi ummæli lengur - spurning hvort þeim hafi verið eytt.
Núna hefur lögreglan á Blönduósi tekið undir gagnrýnina.
það er ábyrgðarhlutur að hafa aðstöðu til þess að fjalla um mál í fréttum fjölmiðla.
Sú ábyrgð virðist hvíla misþungt á ftéttamönnum - í sumum tilvikum virðist hún bara alls ekki vera til staðar.
Verður undir eftirliti í nótt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Veit Jóhanna af þessu.
30.12.2010 | 04:04
Núna er búið að hverfa frá því sem Jóhanna S sagði á 17. júní um fæðingarstað Jóns.
Á nýársdag rennur upp afmælisár Jóns Sigurðssonar forseta en hann fæddist á Hrafnseyri við Arnarfjörð 17. júní 1811.
Koparplata sett á styttu Jóns Sigurðssonar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Skapanornin söm við sig.
29.12.2010 | 13:40
Hræðslustjórnmál eru ær og kýr Jóhönnu og voru líka ær og kýr Ingibjargar Sólrúnar og eru orðin sameiginlegur stimpill á þeim og Steingrími með málsóðann Björn Val sem bergmál Steingríms.
Björn þekkir til Jóhönnu - það gera reyndar líka sumir þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem sátu með henni í stjórn Geirs H Haarde.
Það ætti forysta Framsóknar líka að gera eftir blekkingarleikinn sem þeir voru fengnir til að taka þátt í eftir fall stjórnar Geirs.
Fátt stóð eftir af loforðum Sf við Framsókn þegar upp var staðið -
Það var ekki að ástæðulausu að Jón Baldvin og Jón Sigurðsson héldu henni í skefjum á sínum tíma.
Björn: Gleyma skapgerð Jóhönnu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)