Færsluflokkur: Dægurmál
Loksins - loksins
29.12.2010 | 13:31
En það þurfti pakka allskonar mála til þess að árás á lögreglumann yrði tilefni innisetudóms.
Það er löngu orðið tímabært að dæmt sé í slíkum málum - lögreglumenn eru einhver réttlausasta stétt sem starfar í þessu landi.
Þó barsmíðar - spörk o.fl. dynji á þeim er eins og það dugi árásaraðílunum að segja ææ já ég var íðí - nú eða bara að segja já ok ég gerði það og hvað með það ? - svo er viðkomandi sleppt og sömu lögreglumenn lenda svo í sömu ofbeldismönnunum nokkrum dögum seinna og þessi farsi heldur áfram.
Ætla dómstólar að bíða eftir því að lögreglumaður láti lífið í svona átökum áður en farið verður að verja þá með eðlilegum dómum?
Árs fangelsi fyrir að slá lögreglumann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Er það nú ekki dálítið ofmat??
29.12.2010 | 10:43
minnir einna helst á skíðasvæði í Ölpunum.
Það eru þá flötustu Alpar sem ég hef haft spurnir af.
Moka og moka en komast ekkert áfram | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Löngu dáin. Árni Þór á líkvaktinni.
29.12.2010 | 01:30
Ríkisstjórnin er löngu dáin - var reyndar andvana fædd.
Spurningin er hinsvegar hvort þjóðin lifir eða ekki - stjórnarskipti ( KOSNINGAR ) verða að fara fram eins fljótt og auðið er og þverpólitísk verkefnastjórn á að starfa á meðan.
Það er eina lífsvon þessarar þjóðar.
Telur óvíst að stjórnin lifi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Endemis þvættingur kjaftaskúms.
27.12.2010 | 07:37
Hann kann að koma fyrir sig orði - kunni það líka í fyrri hótanahrinum t.d. vegna Icesave þegar minnihlutinn ásamt nokkrum stjórnarsinnum - aðilum utan þings og að lokum forsetanum og þjóðinni tólkst að hnekkja landráðasamningi Svavars Gestssonar.
Margítrekaðar hótanri Steingríms og Jóhönnu reyndust vera innantómt gaspur - gaspur sem ekki var hlustað á og með því sparaði andstaðan þjóðinni hundruð milljarða.
ÞAÐ ER STJÓRNIN SEM HELDUR SKÚTUNNI Á STRANDSTAÐ -
Í hruninu steytti þjóðarskútan á skeri - í stað þess að losa hana af skerinu tók ríkisstjórnin sig til og keyrði hana lengra upp á skerið og setti hana kolfasta.
Það eina sem er rétt hjá Íslandsböðlinum er það að aðgerðir stjórnarinnar munu hafa "stórpólitísk og langvinn áhrif". Hann reynir að koma sökinni á aðra. Það er misráðið. Það eru EKKI aðgerðir minnihlutans eða forsetans sem valda því. Né heldur andstaða þjóðarinnar - Íslandsböðullinn og skapanornin í stjórnarráðinu eiga þann pakka ásamt þeim sem styðja þau.
Mikil ábyrgð að velta steinum í götuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Réttlausir lögreglumenn.
27.12.2010 | 07:24
Magnað að lesa efnislega sama frasann aftur og aftur. Ráðist á lögreglumann/enn - árásaraðilinn fékk skilorðsbundinn dóm.
Morðhótanir - skilorðsbindinn dómur - lögreglukona slegin í andlitið sparkað í höfuð lögreglumanns - lögreglumönnum og fangaverði hótað lífláti - skilorðsbundinn dómur.
Hversvegna ? Eftir hverju er verið að bíða ? Að sparka í höfuð fólks getur hæglega orðið viðkomandi að bana. Í þessu máli er líka ( að því er virðist ) dæmt vegna líkamsárásar sem átti sér stað fyrr. Þar er sekt.
Þar var líka um að ræða spark í höfuð manns.
Hvað má þessi maður sparka í höfuð margra áður en hann fær alvöru dóm? Er verið að bíða eftir því að fórnarlamb láti lífið?
Vanvirðing dómstóla fyrir öryggi lögreglunnar er til skammar.
Sló lögreglumenn og hótaði öðrum lífláti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvaða máli skiptir það???
24.12.2010 | 12:10
Verðbólgumarkmið Seðlabankans náðist með þessu móti og er þá ekki allt í lagi.
Múslimar fremja hryðjuverk á Kristnu fólki í kirkjum í Írak - hér á landi sér ríkisstjórnin um hryðjuverkin gegn þjóðinni.
Í Írak flýja þeir Kristnu þúsundum saman norður í Kúrdahéruðin og til Jórdaníu í von um skjól - héðan flýr fólk ( ef það getur ) til Skandinavíu og væntanlega víðar.
Kanski er aðferð Múslimanna manneskjulegri. Þeir myrða fólkið - það deyr í flestum tilvikum strax - hér er verið að murka fólk niður og búið að ganga frá áframhaldandi aðgerðum á sömu braut.
Það er sóðaskapur - það er kommúnismi Jóhönnu og Steingríms.
Förum í vorhreingerningu - höldum kosningar í vor - æfum okkur fyrst með því að hafna Icesave.
Ýtum þessum málum til hliðar næstu daga og höldum GLEÐILEG JÓL og tökum svo til hendinni að þeim loknum og komum ríkisstjórninni frá - og KOMUM Í VEG FYRIR AÐ BORGARSTJÓRNARMEIRIHLUTANUM TAKIST AÐ SPARKA KRISTINNI TRÚ ÚT ÚR SKÓLUNUM.
Skriða hækkana skerðir lífskjör almennings | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Blekkingarleikur - og RÚV spilar með - að venju -
22.12.2010 | 20:36
Á sama tíma og talað er um að verðbólgumarkmið Seðlabankans hafi náðst er engin skýring gefin á því hvernig þau hafi náðst - níðingsháttur - ofsköttun - fáránlegar hækkanir og þjóðin keyrð í höft kommúnisma - Sovétskipulagsins gamla. Gjaldeyrishöft - og aðrar niðurrifsaðgerðir standa á bakvið þessar yfirlýsingar. Vestfirðingar vilja fá að vita hvort stjórnin ætli að "gefa skít " í Vestfirði eða koma þeim til aðstoðar - Aðgangur að HÍ er takmarkaður og allt annað í sama dúr.
Svo talar Seðlabankinn fagnandi um árangur - Trotskyistinn í fullu samræmi við niðurrifsstarfssemi Íslandsbana og Skapanornnarinnar í Stjórnarráðinu.
Það eru nöturlegar aðferðir.
RÚV birtir upplýsingar Seðlabankans hráar - gagnrýnislaust - enda opinber fréttastofa stjórnarinnar - sanngirni - hlutleysi og jafnræði er ekki til í orðaforða starfsmanna RÚV - eða þá að skilningur orðanna er annar hjá þeim en hjá öðru fólki.
Verðbólgan í samræmi við markmið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Áramótahækkanirnar
22.12.2010 | 20:25
Þetta gefur Íslandsbana byr undir báða vængi fyrir hækkanirnar um áramótin.
Á sama tíma og talað er um að verðbólgumarkmið Seðlabankans hafi náðst er engin skýring gefin á því hvernig þau hafi náðst - níðingsháttur - ofsköttun - fáránlegar hækkanir og þjóðin keyrð í höft kommúnisma - Sovétskipulagsins gamla. Gjaldeyrishöft - og aðrar niðurrifsaðgerðir standa á bakvið þessar yfirlýsingar. Vestfirðingar vilja fá að vita hvort stjórnin ætli að "gefa skít " í Vestfirði eða koma þeim til aðstoðar - Aðgangur að HÍ er takmarkaður og allt annað í sama dúr.
Svo talar Seðlabankinn fagnandi um árangur - Trotskyistinn í fullu samræmi við niðurrifsstarfssemi Íslandsbana og Skapanornnarinnar í Stjórnarráðinu.
Það eru nöturlegar aðferðir.
RÚV birtir upplýsingar Seðlabankans hráar - gagnrýnislaust - enda opinber fréttastofa stjórnarinnar - sanngirni - hlutleysi og jafnræði er ekki til í orðaforða starfsmanna RÚV - eða þá að skilningur orðanna er annar hjá þeim en hjá öðru fólki.
Hækkanir á eldsneyti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvað er Íslandsmetið í golfi?
22.12.2010 | 04:45
Fréttakonan sem setti fram þessa spurningu er á sömu nótum varðandi golfið og ríkisstjórnin er í stjórnun þjóðfélagsins.
Lilja er á röngum stað - hún ætti að vera í Sf eða Sjálfstæðisflokknum enda margar af hennar tillögum í efnahagsmálum á sömu nótum og hjá Sjálfstæðisflokknun og Framsókn.
Orð Þórs Saari - eru bara það - orð Þórs Saari.
VG gera allt til að losna við Lilju | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
esb - bretar og norðmenn.
21.12.2010 | 18:06
Þetta eru mjög góð tíðindi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)