Færsluflokkur: Dægurmál
Jón veldur vonbrigðum.
21.12.2010 | 18:04
Í þessu ljósi hafa íslensk stjórnvöld gagnrýnt ESB og Noreg harðlega fyrir að hafa tekið ákvörðun um makrílkvóta sína fyrir næsta ár sem nema samtals 583.882 tonnum eða rúmlega 90% af ráðlögðum heildarafla. Ljóst er að þessir aðilar tóku við ákvörðun sína ekki tillit til lögmætra hagsmuna strandríkjanna Íslands og Færeyja. Kvótaákvörðun ESB og Noregs er í raun og veru ákvörðun um að heildarveiðar á makríl á næsta ári fari fram úr ráðlögðum heildarafla og er fullri ábyrgð vegna þessa vísað á hendur þeim.
Samt á ekkert að gera - ekki má styggja esb vinina og bretland verður að fá að kúga okkur í þessu líka.
Ekkert má gera sem gæti tafið aðildarviðræðurnar.
Það er illt að vera ber að baki - en ber er hver að baki nema sér bróður eigi.
Ekki tilefni til viðbragða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Starfsheiður starfsmanna Stjórnarráðsins..
21.12.2010 | 07:50
Þessu vísaði forsætisráðuneytið á bug í yfirlýsingu, sem birtist á laugardag. Sagði þar, að svörin hefðu öll verið unnin af fyllstu vandvirkni og eftir bestu vitund en úrvinnslan verið í höndum Fjársýslu ríkisins og allra ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Málatilbúnaður alþingismannsins standist enga skoðun og sé alvarleg aðför að starfsheiðri starfsmanna Stjórnarráðsins.
Það eru væntanlega sömu starfsmenn og unnu að launamálum Seðlabankastjóra án vitundar ráðherra - að sögn - þannig að hún sagði þinginu ósatt þá - sennilega sömu starfsmenn og leyndu - að sögn - ráðherra upplýsingum og lögfræðiálitum varðandi ólöglega lán - o.fl.
Þetta eru væntanlega sömu starfsmennirnir sem ákveða "hvað fer inná borð ráðherra"
Ég hef ekki hingað til haft aðstöðu til þess að kjósa þessa starfsmenn frekar en kjósendur almennt. Það er því spurning hversvegna þeir hafa fengið - eða hafa tekið sér - svo mikil völd sem raun ber vitni um.
Er ekki kominn tími til að kjörnir fulltrúar þjóðarinnar fari að fái völdim sem við héldum að þeir hefðu?
Svör ráðherra til Ríkisendurskoðunar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Trotskyistinn ómarktækur
20.12.2010 | 09:35
Ekki er unnt að taka mark á neinu sem frá bankanum kemur á meðan Trotskyistinn ræður þar för - hann segir það sem ríkisstjórnin vill heyra - hangir í pilsfaldi skapanornarinnar í Stjórnarráðinu og buxnaskálmum Íslandsböðulsins í Fjármálaráðuneytinu -
Eða er það öfugt ? Er skapanornin í buxunum og Íslandsböðullinn í pilsinu?
Hver fréttin á eftir annari hefur komið að utan um veikleika Evrunnar ( og reyndar ESB líka ) þannig að tal bankans er sennilega úr sömu skúffu og umræðan um launakjör bankastjórans.
Evran vænlegasti kosturinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Áfram Guðlaugur Þór.
19.12.2010 | 17:13
Löngu tímabært að krefja þetta fólk svara - Jóhanna er sérfræðingur í að vita ekkert - hvorki um þetta mál né launasamninga Trotsyistans í Seðlabankanum að ekki sé minnst á lögfræðiálit um ólöglegar lánveitingar o.fl.
Segir Jóhönnu staðfesta leynd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Við viljum líka passa stofninn.
18.12.2010 | 16:10
Draumur Sf og Vg er að koma okkur í esb.
Það er merkilegt að heyra þvætting skota sem eru að "passa" Makrílstofninn - með því að veiða úr honum. - Við viljum líka passa stofninn innan okkar svæðis.
Það er mikilvægara nú en nokkru sinni að Evrópusambandið beiti Íslendinga refsiaðgerðum á viðskiptasviðinu til að bregðast við óábyrgri hegðun þeirra, sagði Gatt.
Þetta er það sem bíður okkar þar - það má bara ekki dragast að fara þarna inn til vina okkar.
Fordæma ákvörðun um makríl | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hætta strax
18.12.2010 | 08:05
Narr er búinn að sýna bæði Hönnu Birnu og öðrum fulltrúum minnihlutans ítrekað að hann fyrirlítur þau og allt sem þau hafa fram að færa.
Auk þess sem hann er búinn að sýna borgarbúum fingurinn í hverju málinu á eftir öðru - það er augljóst að hann er að kanna hvað hann geti gengið langt án viðbragða.
Hanna Birna gefur borgarstjórn yfirbragð festu og öryggis.
narr sér það ekki og heldur áfram fíflsku sinni.
Þess vegna á Hanna Birna að hætta strax sem forseti borgarstjórnar.
Hlýt að íhuga að hætta sem forseti borgarstjórnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Innkoma - kostnaður
17.12.2010 | 16:10
Innkoma 3.150 milljónir - kostnaður 1.271 milljón -
Er þetta ásættanlegt?
375 milljóna málsókn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ótrúleg skammsýni.
17.12.2010 | 01:59
Það fara miklu fleiri bílar á milli Breiðholtshverfanna og annara hverfa í Reykjavík.
Mikill fjöldi fer úr og í Grafarvog og Grafarholt.
Þarna á að skattleggja.
Notkun á gangstéttum er líka veruleg og ber að skattleggja - strax - 25 krónur á skref fyrstu 1000 skrefin og 45 krónur pr skref eftir það.
Veggjöld milli hverfa í Reykjavík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Látið ykkur dreyma
16.12.2010 | 07:19
sjs samþykkir ekki tillögur frá minnihlutanum -
Íslandsbani sér eigin hugmyndir og indriða - ekki aðrar.
Vilja lækka skatta um 40 milljarða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mölin og ESB
15.12.2010 | 13:53
Vonandi er mölin gróf - vonandi rústar hún GANGVERKINU -
Og er þetta ekki talandi dæmi um það sem bíður innan ESB - að vera MALAÐUR niður í gangverki ESB
Gæti virkað eins og möl á gangvirkið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)