Færsluflokkur: Dægurmál
Talar niðrandi um fólk með banvænann sjúkdóm.
15.12.2010 | 13:46
narr borgarstjóri sá ástæðu til þess að níða fólk sem er haldið banvænum sjúkdómi.
Tugþúsundir Íslendinga berjast við þennan sjúkdóm í dag.
Ótaldar þúsundir hafa látið í minni pokann fyrir Bakkusi - ýmist drukkið sig í hel eða fyrirfarið sér.
Hörmungarnar sem eru undanfari þess eru oft ólýsanlegar.
Að nota þetta sem samlíkingu er lágkúra og leitt að sjá fólk taka undir níðið.
Hverjir verða næstir - fólk með sykursýki - krabba eða????
Líkti þjóðinni við fjölskyldu alkóhólista | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Vinir stjórnarinnar
14.12.2010 | 11:46
Vinir ríkisstjórnarinnar sýna enn og aftur sitt rétta andlit -
Kúgun og ofbeldi - ofríki og meiri kúgun.
Þetta eru aðilarnir sem stjórnin vill ólm koma þjóðinni í fagið á - nú eða undir hælinn á þeim.
Hóta þvingunum vegna makríls | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heimildir Bjarna
14.12.2010 | 08:44
Bjarni hefur að sjálfsögðu heimild til þess ( eins og hann gerði við lagfæringarnar á níðsamningi Svavars og Steingríms ) að vinna að breytingum á þessum fáránleika.
Að styðja frumvarpið er allt annað mál - þrátt fyrir breytingar - það er ekki á borðinu.
Þjóðin á að kjósa um þetta og fella það - og svo á málið að fara fyrir dóm.
Þetta frumvarp er stjórnarfrumvarp - sem eins og mörg önnur stjórnarfrumvörp - gengur þvert á hagsmuni landsmanna.
Slíku frumvarpi ber stjórnarandstöðunni að berjast á móti og annað tveggja að greiða atkvæði gegn því eða sitja hjá.
Icesave verður stjórnarfrumvarp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
VG og Svarti Pétur
14.12.2010 | 08:33
Núna er Sf ráðherrann Gujartur Hannesson að slá sig til riddara með því að draga úr niðurrifshugmundum Álfheiðar Ingadóttur -
Er furða þótt VG liðum líði illa?
Mikil átök hjá VG | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Allt sem þér gjörið
14.12.2010 | 08:21
Allt sem þér gjörið til góðs eða ills munu þér fá sjöfalt til baka.
Guð hjálpi Steingrími J Sigfússyni.
Nú er þetta allt orðið ég einn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Er Kristinn Hrafnsson algjörlega úti að aka?
12.12.2010 | 14:08
standa upp og sýna hugrekki og þor og dug. Gerast ljósberi og kyndilberi tjáningarfrelsisins og mannréttinda hér á norðri, segir Kristinn.
Veit maðurinn ekki að allt slíkt er bannað hér í dag - meira að segja verður Alþingi að berjast hatrammri baráttu til þess að fá vitneskju um hin ýmsu mál sem það á að fjalla um t.d. Icesave - launamál Seðlabankastjóra - lögmæti lánasamninga - Viljayfirlýsingu o.fl.
Ég held að þessi ágæti maður ætti að hefjast handa hér heima við að fá stjórnina til þess að virða upplýsingaskyldu - þótt ekki væri nema gagnvart Alþingi þjóðarinnar.
Skorar á Össur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Slakið á - Ísland er að koma - eða Ísland úr NATO?
11.12.2010 | 09:10
Læti eru þetta -
Veit fólkið ekki að Jóhanna ( Samfylkingin ) og Steingrímur ( VG ) eru að koma til bjargar.
Þau ætla að koma Íslandi inn hvað sem tautar og raular. Þá verða engin vandræði með Evruna - atvinnuleysið í ESB hverfur - og Evrópa verður aldingarður veraldar.
Eða hvað -
Merkel og Sarkozy ræða vanda ESB-ríkja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Noregur og ESB - NATO.
11.12.2010 | 08:46
"Frændur okkar og vinir" í Noregi og leiðtogar þeirra í ESB hafa nú komist að "samkomulagi".
Samkomulagi sem felur það í sér að Ísland á að halda sér saman og gera það sem bandamennirnir úti segja. Ekki veiða innan ykkar lögsögu nema það sem vinirnir ákveða.
Svo koma skotar - sem eitt sinn voru stoltir og sjálfstæðir - og segja Íslendinga vera óábyrga.
Hnignun skota birtist m.a. í framleiðslu á fyrirbærum eins og gordon brown og darling sem eru væntanlega afkomendur þeirra skota sem seldu sig englendingum fyrir margt löngu.
Norðmenn sem hér réðu ýmsu á öldum áður vilja ráða aftur - hafa reyndar valdið okkur stórtjóni á fiskmörkuðum í gegnum áratugi með undirboðum sem þeir fjármagna með olíugróðanum.
Núna vilja þeir koma í veg fyrir að við veiðum - þá hafa þeir markaðina fyrir sig og sína í esb.
Er ekki kominn tími á endurskoðun "samstarfsins" við norðurlandaþjóðirnar?
Er kanski kominn tími á að endurskoða veru okkar í NATO?
646.000 tonna makrílkvóti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Steingrímur þvættingur.
11.12.2010 | 04:40
"Þá er þetta að verða býsna myndarlegur jólapakki," Sagði SJS.
Samkomulag um skuldavanda heimilanna setti hann líka inn í þessa yfirlýsingu -
Sá samningur fól ekkert annað í sér en afskrift óinnheimtanlegra krafna - krafna sem ekki var nokkur leið að fá greiddar.
Svona til þess að lækkun skulda heimilanna yrði nú ekki mannsæmandi liggur fyrir hækkun á ýmsum þáttum t.d. áfengi - bensíni o.fl. sem snarHÆKKAR skuldir heimilanna vegna fáránlegrar vísitölutengingar.
Og svo hrundi spilaborgin vegna vegaframkvæmdanna - Ekkert sem þessi lánlausa stjórn kemur að gengur upp - Stjórnarandstaðan bjargaði því sem bjargað varð í Icesave málinu. SJS sér það ekki enn og reynir að halda því fram að landráðasamningur Svavars hafi verið býsna góður.
Björn Valur var ótrúlegur í málflutningi sínum í þinginu þegar fjárlögin voru rædd. Kom upp aftur og aftur og talaði um hve miklum árangri stjórnin hefði náð - kom upp í andsvörum og vældi - EN GETUM VIÐ ÞÓ EKKI VERIÐ SAMMÁLA UM AÐ ..... Það þarf sérstaka manngerð til þess að setja "árangur" stjórnarinnar í fjármálum í jákvæðann búning.
Veruleikafirrtir menn á borð við Steingrím og Björn Val eru sem betur fer sjaldgæfir.
Myndarlegur jólapakki væri afsögn stjórnarinnar og að boðað yrði til kosninga í mars/apríl og að fram að þeim tíma sæti þverpólitísk starfsstjórn.
Viðræðuslit við lífeyrissjóði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Veruleikafirrtur eins og írakskur ráðherra.
10.12.2010 | 15:43
Steingrímur er ekki neinum tengslum við þjóðfélagið ef hann trúir þessu -
þvílík endaleysa - nýju fötin keisarans hafa verið hans fyrirmynd - bara tal ekkert efni - svo er enn.
Erum að ná tökum á ástandinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)