Færsluflokkur: Dægurmál

Á annað hundrað milljarðar.

Bjarni segir að á annað hundrað milljarða hafi sparast ( ekki 200 eins og Mbl segir ).

Þetta er gífurlegt fé - en það verður að gera þá kröfu til formannsins að þegar hann hefur farið í gegnum bunkann sem hann fékk - þá mæti hann í fjölmiðla og geri grein fyrir samningnum á mannamáli -

Það er talað um áhættu ríkisins uppá hundruðir milljarða - það er talað um allt niður í 50.

Þegar upp er staðið er maður engu nær -

En eitt blasir við -  þessi samningur á að fara í þjóðaratkvæði  OG málið allt fyrir dómstóla.

VIÐ EIGUM EKKI AÐ BORGA EITT EÐA NEITT.


mbl.is „Þurfa að svara fyrir fyrri samning“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svavarsníð átti líka að vera rosalega gott

Ekkert í Icesave sem felur í sér útgjöld fyrir þjóðina er góð niðurstaða.

Enda þótt stjórnarandstöðunni tækist að koma í veg fyrir landráðasamning stjórnarinnar jafngildir það ekki því að þessi samningur - sem er þó vægast sagt allt önnur Ella - sé í lagi.

ÞETTA MÁL Á AÐ FARA FYRIR DÓMSTÓLA


mbl.is Býsna góð niðurstaða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnkænska Dags og Gnarr

Góð afkoma borgarinnar fyrstu 9 mánuði ársins er afrakstur traustrar stjórnar Hönnu Birnu Kristjánsdóttur.

Í þessari frétt sem og öðrum af ákvörðunum þeirra Knoll og Tott birtist hinsvegar svört mynd - mynd af vanhæfum stjórnendum.

Nóg er að hafa yfir sér óhæfa og lánlausa ríkisstjórn - það var ekki þörf á því að draga starfsaðferðir hennar inn í borgarstjórn og mergsjúga borgarbúa í tangarsókn ríkis og borgar.

Það má vel vera að þeim félögum sé mikið í mun að reka unglingana út á götuna í leit að afþreyingu.

Ég er þeirrar skoðunar að sú stefna sé röng og ættu þeir félaga að vera sér meðvitaðir um það líka.

En það er kanski Múmínaðferðin -


mbl.is Kemur niður á íþróttum barna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áfellisdómur yfir Steingrími og Jóhönnu.

Við eigum ekki að greiða eitt eða neitt - þetta mál á að fara fyrir dómstóla hver sem niðurstaða viðræðnanna er -

íslenska Icesave-samninganefndin gekk til viðræðna við Breta og Hollendinga á þeim forsendum að Íslendingum bæri hvorki að greiða eitt né neitt. Þetta sagði Lárus Blöndal, einn nefndarmanna, þegar niðurstöður viðræðnanna voru kynntar í gær.

Þegar búið verður að vinna málið er Evrópukerfið hrunið - það vita nýlendukúgararnir.

Hvar er annars frumvarpið um að kæra breta fyrir beitingu hryðjuverkalaganna statt??


mbl.is Bar ekki skylda til að greiða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Virkilega ??? er það til hagsbóta ???

Aðstoðarmaður borgarstjóra segist ánægður með góða stöðu og ef staðan verði einnig góð á næsta ári muni það verða til hagsbóta fyrir borgarbúa.

Maðurinn er fráleitt í lagi - Vissulega er örugg stjórn Hönnu Birnu enn að koma fram og staðfestist í þessari afkomu - sem náðist án þess að leggja auka álögur á borgarbúa.

EN EN EN  nú fer að koma fram stjórnkænska núverandi meirihluta - ÞAÐ VERÐUR EKKI TIL HAGSBÓTA FYRIR BORGARBÚA.

Hækkanir OR og hverskyns skatta eru EKKI TIL HAGSBÓTA FYRIR BORGARBÚA.

Allar breytingar gnarrdagsins eru íþyngjandi fyrir borgarbúa og þaðÞAÐ ER EKKI TIL HAGSBÓTA FYRIR BORGARBÚA.

Nóg er um djöfulgang ríkisstjórnarinnar í hækkunum - borgin þurfti ekki að höggva í sama knérunn - það er jú sama fólkið sem verið er að murka niður.

Má vera að næsta ár - árið 2011 - komi vel út fyrir borgina - EN ÞAÐ MUN EKKI KOMA VEL ÚT FYRIR BORGARBÚA SEM ERU MERGSOGNIR Í TANGARSÓKN RÍKIS OG BORGAR.

Þannig að yfirlýsing aðstoðarmannsins er röng. Borgarbúar eru EKKI að njóta góðrar afkomu borgarinnar - þeim er refsað fyrir það að kjósa vanhæfann trúð.


mbl.is Segir hækkanir skatta og gjalda óþarfar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn ein viðurkenningin til Hönnu Birnu.

Þessar tölur sýna enn og aftur hve frábært starf Hanna Birna Kristjánsdóttir vann sem borgarstjóri.

Þessar tölur sýna líka enn og aftur fíflaganginn í núverandi borgarstjóra og hans fólki sem virðist ekki bera skynbragð á eitt eða neitt og setti algjörlega óþarfa álögur á borgarbúa.

Það skiptir engu hvernig narr tafsar - umlar og stamar - EKKERT sem frá honum kemur ber vott um skynsemisörðu.

Aðeins bull og þvættingur - til tjóns fyrir borgarbúa.

Dagur B Eggertsson er ábyrgur fyrir þessu öllu og fetar dyggilega í fótspor lánlausrar ríkisstjórnar sem starfar algjörlega á gnarr nótum og virðist ekki gera sér nokkra grein fyrir afleiðingum gerða sinna.


mbl.is Góður árangur í fjármálum borgarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Beita hryðjuverkalögunum ??

Núna verða breskir að beita hryðjuverkalögunum aftur - svo eigum við að beita einhverjum lögum gegn Bakkavör líka fyrir það að halda uppi atvinnu í bretlandi.

Þeir fækkuðu uppsögnunum úr 375 í 140 þannig að það hljóta æði margir að vinna hjá fyrirtækinu. Er ekki hægt að flytja þau störf hingað heim?

 


mbl.is Bakkavör segir upp starfsfólki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarf ég að vita þetta???? Nei.

Hversvegna er starfsmönnum fjölmiðla svona mikið í mun að nudda svona "fréttum" framan í fólk?

Það hlýtur eitthvað að vera að hjá þessu fólki -

Hér á síðunni er ein viðbjóðs"fréttin" frá Japan.

Er ekki mál að linni?


mbl.is Embættismaður bakkaði yfir fimm Kínverja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarf ég að vita þetta????

 

Merkileg árátta fréttamiðla að þurfa að nudda svona viðbjóði framan í fólk.

Er eitthvert okkar bættara við það að fá svona upplýsingar?

Ég er sannfærður umað svo er ekki.

Hættið svona óþverrahætti.


mbl.is Myrti fimm mánaða gamlan son sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhanna , Icesave , skattarnir og þjóðaratkvæðagreiðsla.

Jóhanna Sigurðar­dóttir: Ekki kostur að fresta Icesave um vikur eða mánuði

- Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í umræðum á Alþingi um Icesave-frumvarpið 30. desember 2009

Munum ekki hækka skatta

- Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra svarar fyrirspurn á Alþingi 9. febrúar 2009 um hvort ríkisstjórnin hyggist hækka skatta

Jóhanna Sigurðar­dóttir: Krafan um þjóðar­atkvæði brýnni þegar stjórnar­hættir minna á einræðisherra

- Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, í grein í Morgunblaðinu 25. maí 2004 þá var hún þingmaður og hvatti til þjóðaratkvæðagreiðslu m.a. um fjölmiðlalögin

 

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband