Færsluflokkur: Dægurmál

Uppreisn ---- ferill SJS í Icesave

Uppreisn, verði kröfur samþykktar, október, 08:

Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri grænna, segir að það verði gerð uppreisn hér á landi verði gengið að kröfum Breta og Hollendinga um að Íslendingar greiði 600 milljarða króna vegna Icesave-reikninganna:

http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item233100/

 

STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON, stjórnarandstæðingur

Steingrímur segir að ef það sé rétt að þetta tvennt hangi saman sé það hrein fjárkúgun, október, 08:

Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna segist hafa heyrt þann orðróm að Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn hafi sett sem skilyrði að mál vegna Icesave reikninga Landsbankans yrðu gerð upp að fullu við Breta og Hollendinga.
Steingrímur segir að ef það sé rétt að þetta tvennt hangi saman sé það hrein fjárkúgun. Ekki liggi fyrir að okkur sé lagalega skylt að gera það og þetta bendi til þess að verstu martraðir séu að rætast varðandi aðkomu Alþjóða gjaldeyrissjóðsins:

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/10/22/likir_bretalani_vid_fjarkugun/

 

 STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON, stjórnarandstæðingur, janúar, 09:Framan af höfðu ýmsir ráðherrar ríkisstjórnarinnar uppi stór orð um að ekki kæmi til greina að Íslendingar létu kúga sig til uppgjafar í deilunni um hina lagalegu og þjóðréttarlegu ábyrgð landsins gagnvart Icesave-reikningunum. Eins og lögfræðingar hafa bent á var hlutverk innlánatryggingarkerfa samkvæmt reglum ESB/EES-svæðisins aldrei að takast á við allsherjar bankahrun, heldur aðeins fall einstakra banka.

Eins og undirritaður lýsti yfir við atkvæðagreiðslu um málið í þinginu 5. desember síðastliðinn lítur þingflokkur Vinstri grænna á samninginn sem riftanlegan eða ógildanlegan nauðungarsamning. Enn er hægt að afstýra stórslysi fyrir íslenska þjóð. Taki Tryggingarsjóðurinn hins vegar við skuldunum er ljóst að þá verður ekki aftur snúið: Þá hefur þjóðin endanlega verið skuldsett á grundvelli pólitískra þvingunarskilmála sem ríkisstjórnin hafði ekki dug í sér til að standa gegn:http://www.amx.is/adgerd.php?adgerd=pdf&id=7628

Svo mörg voru þau orð


mbl.is Niðurstaða vonandi í vikunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kristján Þór og Sjálfstæðisflokkurinn.

Hversvegna getur stjórnin ekki hlustað á varnaðarorð Sjálfstæðismanna og tillögur flokksins?

Þarna er um að ræða mjög miklar breytingar á fjárlögunum,“ segir Kristján Þór Júlíusson, Sjálfstæðisflokki. „Forsendur þess voru brostnar þegar það var lagt fram og nú horfum við fram á tekjufallið í tengslum við nýja þjóðhagsspá fyrir næsta ár og varað hafði verið við. Því er mætt með þeim hætti að hræra áfram í ákveðnum stærðum, í stað þess að reyna að skapa auknar tekjur með því að örva atvinnurekstur í landinu eða skera niður á móti þessum útgjaldauka.“

Það ætlar að verða þjóðinni dýrt að Jóhanna og Steingrímur hjakka í sömu förunum og þegar þau sátu í stjórnunum sem voru myndaðar - 1988 og 1989 undir forsæti Steingríms Hermannssonar.


mbl.is Tekjur lækka um 11 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kristján Þór. Tillögur Sjálfstæðisflokksins.

Kristján Þór er glöggur maður og þekkir fjárlagapakkann betur en flestir aðrir - Aðvörunarorð hans og fleiri þingmanna Sjálfstæðisflokksins hafa hvorki fengið hljómgrunn hjá stjórninni eða fjölmiðlum.

Núna birtir þetta allt í helstefnu lánlausrar ríkisstjórnar sem ætlar að halda áfram á sömu braut -

Stjórnarandstaðan með XD í broddi fylkingar kom í veg fyrir nauðungarsamning Svavars Gestssonar og stjórnarinnar - núna blasir við að ofboðaslegar fjárhæðir hefðu farið í súginn ef skrifað hefði verið undir samninginn undi hótanahrópum JS og SJS.

En öl hin atriðin sem ekki hefur náðsr að koma í veg fyrir halda áfram að knésetja þjóðina..

Blekkingarleikur með ímyndaða lánsþörf með tilheyrandi vaxtagreiðslum var dregin til baka um daginn og látið skína í það að aðgerðir ríkisstjórnarinnar hefðu gert þetta mögulegt.

Þvættingur - þetta var bara hluti af blekkingarpakkanum - það var EKKI þörf fyrir þessi lán.

Vonandi nær Kristján Þór og þingflokkur Sjálfstæðismanna að kynna betur tillögurnar sem birtar voru um daginn. Það er full þörf á því.


mbl.is Erfitt efnahagsástand út 2012
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Styrkirnir

Sf endurgreiðir þá væntanlega stóru styrkina - það gæti gagnast til þess að borga upp í Baugsuppgjörið.
mbl.is Alvarleg mistök í styrkjamálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Persónukjör

Ég tel að kjör á Stjórnlagaþing hafi sannað það að persónukjör gengur ekki upp.

Fólk sem er þekkt úr fjölmiðlum hefur svo gífurlega yfirburði þegar kemur að kynningu að það er gjörsamlega útilokað fyrir hinn almenna borgara að etja kappi við slíka yfirburði.

Auglýsingaherferðir upp á milljónir geta ekki unnið upp þann mun.

Hrokafull ummæli Þorvaldar Gylfasonar ( hans auglýsingastofa er Silfur Egils ) um að hann mæli með því að frambjóðendur dvelji síðustu 3 vikurnar fyrir kosningar í Suður Afríku  er enn ein sönnunin. Hann þurfti ekkert að hafa fyrir þessu - baráttan var unnin áður en hún hófst.

Ómar Ragnarsson er annað ömurlegt dæmi.

 


mbl.is Opnum prófkjörum verði hætt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leiksýning

Þetta er hluti af leiksýningunni - Álfheiður setti niðurrifið í gang - svo kemur Guðbjartur og slær það af og fólk telur ríkisstjórnina vera að vinna þarft verk í þágu almennings.
mbl.is Sér ekki sparnað í tillögum SÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loforð

Hversvegna fékk hún ekki að standa við þetta loforð ?

Hver lítur á þetta sem hótun?


mbl.is Jóhanna hótaði afsögn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engar áhyggjur

Hann er sjálfur búinn að gefa það út að birting skjalanna setji ekki nokkurn mann í hættu.
mbl.is Mamma Assange hrædd um soninn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Laga efnahagsástand heimsins -

Samkvæmt orðum Bandaríkjaforseta hófst kreppan á því að húsnæðiskaupendur í Florida gátu ekki staðið í skilum og lauk með efnahagshruni á Íslandi.

 Svo var Lehmannsbanki látinn fara á hausinn með sínum skelfilegu dominóafleiðingum -

Núna kemur Clinton og segir  m.a.

Ríkisstjórnin fylgir öflugri utanríkisstefnu sem miðar að því að styrkja þjóðarhagsmuni Bandaríkjanna og hafa forystu í heiminum um að leysa flóknustu viðfangsefni okkar tíma, eins og að laga efnahagsástand heimsins,

Mikið lifandis ósköp hefði það nú verið léttbærara að bandaríkjastjórn hefði stöðvað hrunið heima hjá sér í stað þess að ausa því yfir heimsbyggðina.


mbl.is Clinton um Wikileaks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Getur það verið??

Hinn íslenski samstarfsmaður eða starfsmaður Wikileaks fullyrti fyrir skömmu að engin hætta væri á ferðum -samstarfsmenn bandaríkjastjórnar væru óhultir - engin nöfn.

Nú - ef það sem Kaninn segir - er þetta rang - blaðamenn - trúarleiðtogar og baráttumenn allskonar sem veitt hafi upplýsingar séu í hættu.

Svo er forsvarsmaður lekans í felum -

Burtséð frá eðli lekans og tilurð þeirra gagna sem hann birtir - eru forsvarsmenn hans ekki samsekir ef einhverjir verða myrtir í kjölfar birtinganna?

 

 


mbl.is Munu vernda heimildarmenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband