Færsluflokkur: Dægurmál
HÓTUN OG ÓSANNINDI
4.11.2010 | 10:59
Hótun Jóhönnu er innantóm - en annars hélt ég að það væri ekki lögum samkvæmt að hóta - og það að hóta heilli þjóð - það hlýtur að flokkast undir stórfellt afbrot.
Ósannindi - - það vanti tillögur frá stjórnarandstöðunni????
Gefum heimilum von
Skattahækkanir dregnar til baka á næstu tveimur árum
Fréttatilkynning 1. nóvember 2010
- Skattar lækkaðir á heimili úrræði rýmkuð og einfölduð
- Nýtum auðlindir sköpum tuttugu og tvö þúsund störf innan þriggja ára
- Betri ríkisrekstur fátæktargildrum í bótakerfum útrýmt
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins kynnir í dag tillögur sínar um aðgerðir til að stuðla að sátt við heimilin, verja velferð með ábyrgum ríkisfjármálum, efla atvinnulífið og fjölga störfum. Þingsályktunartillaga þessa efnis verður lögð fram um leið og þing kemur saman á fimmtudaginn.
Í tillögunni kemur fram að efnahagsbatinn sem spáð var á þessu ári láti standa á sér en það er afleiðing vanhugsaðra aðgerða í skattamálum og aðgerðaleysis í málefnum heimila og atvinnulífs.
Sjálfstæðisflokkurinn leggur því fram tillögur sínar um aðgerðir í efnahagsmálum, sem eiga að bæta stöðu heimila, fyrirtækja og ríkissjóðs, endurheimta tiltrú á íslenskt efnahagslíf og fjölga störfum.
Tillögurnar skiptast í þrennt og snúast í fyrsta lagi um að gefa heimilum von, í öðru lagi um endurheimtu starfa og eflingu atvinnulífs og í þriðja lagi um hagræðingu og aðhald í rekstri ríkisins, sem er mikilvæg forsenda áframhaldandi velferðar í landinu.
Skattar lækkaðir á heimili úrræði rýmkuð og einfölduð
Sjálfstæðisflokkurinn vill að skattahækkanir núverandi ríkisstjórnar á heimilin verði dregnar að fullu til baka á næstu tveimur árum.
Einnig vilja sjálfstæðismenn að greiðsluaðlögunarúrræðin verði einfölduð verulega og rýmkuð frá því sem nú er og að öllum sem þess óska standi til boða að lækka greiðslubyrði fasteignalána sinna um allt að 50% næstu þrjú árin gegn lengri lánstíma. Þá skuli þeir sem missa atvinnu eiga rétt á að frysta greiðslur vegna húsnæðisskulda í allt að sex mánuði. Þeim sem missa heimili sitt vegna mikillar skuldsetningar eða gjaldþrots verði gert kleift að endurleigja það gegn hóflegri greiðslu og njóta kaupréttar á húsnæðinu í allt að fimm ár.
Lagt er til að fyrningarfrestur eftir gjaldþrotaúrskurði verði styttur, afskrifaðar skuldir einstaklinga sem verða eignalausir myndi ekki skattstofn, stimpilgjöld verði afnumin og að tryggt verði með lagabreytingu að þeir, sem misst hafa eigur sínar vegna vanskila á ólögmætum gengistryggðum lánum, geti leitað réttar síns fyrir dómstólum. Skulu þeir njóta flýtimeðferðar. Auk þessa er lagt til að vaxtabóta- og húsaleigubótakerfin verði styrkt í þágu þeirra sem bágust kjörin hafa.
Tuttugu og tvö þúsund störf innan þriggja ára
Með bættum rekstrarskilyrðum munu lítil og meðalstór fyrirtæki ná sér fljótt á strik en þar verða flest störf til. Mynda þarf 22.000 ný störf á næstum tveimur til þremur árum.
Þingflokkur sjálfstæðismanna leggur til að auðlindir verði nýttar skynsamlega, hvötum beitt til að örva hagkerfið, markvisst verði unnið gegn atvinnuleysi og óvissu eytt í umhverfi fyrirtækja.
Meðal þess sem lagt er til er að:
- Auka þorskafla um 35.000 tonn og hverfa frá fyrningarleið
- Greiða fyrir framkvæmdum í Helguvík og koma á orkufreku verkefni á Bakka
- Hrinda í framkvæmd arðbærum verkefnum í samvinnu við lífeyrissjóði og aðra
- Beita skattkerfinu til að verja störf og mynda ný
Lögð er áhersla á að afnema óhagkvæma skatta sem vinna gegn verðmætasköpun og auka skattaafslætti vegna rannsókna og þróunarstarfs. Veita ber nýjum fyrirtækjum undanþágu frá tryggingargjaldi í tvö ár frá stofnun og starfandi fyrirtækjum sem fjölga störfum 2011 og 2012 afslátt af gjaldinu. Endurskoða þarf vörugjöld og verndartolla.
Einnig telur þingflokkur Sjálfstæðisflokksins að eyða verði óvissu um skattlagningu í atvinnurekstri næstu árin og vegna fjárfestingar í orkufyrirtækjum. Þá skuli gjaldeyrishöftum aflétt í kjölfar minnkandi þrýstings á gjaldmiðilinn innan hæfilegs tíma.
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins vilja að ýtt verði undir sköpunarkraft atvinnulausra, og þeir sem verið hafa atvinnulausir í meira en sex mánuði fái aðstoð til að hefja eigin rekstur hafi þeir á því áhuga. Tryggingargjald verði lækkað samhliða minnkandi atvinnuleysi.
Betri ríkisrekstur fátæktargildrum í bótakerfum útrýmt
Aðhald í ríkisrekstri er mikilvæg forsenda áframhaldandi velferðar. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins stefnir að hallalausum ríkissjóði árið 2013 en hefur að leiðarljósi að réttur landsmanna til grunnþjónustu í heimabyggð heilbrigðisþjónustu, löggæslu og menntunar sé tryggður óháð búsetu.
Aðgerðir til að bæta rekstur ríkisins en tryggja jafnframt velferð eru í tíu liðum.
Meðal annars er lagt til að á meðan yfirlýsing ríkisstjórnarinnar um ábyrgð á innstæðum í fjármálafyrirtækjum er í gildi verði tekið sérstakt 0,25% gjald af stofni allra innstæðna í bönkunum. Ítrekað er að farin verði sú leið að skattleggja inngreiðslur séreignarsparnaðar.
Lögð er áhersla á að forðast flatan niðurskurð á háskólastiginu en þess í stað byggt á færri og sterkari einingum.
Í heilbrigðiskerfinu skal svigrúm fyrir starfsemi einkaaðila aukið og í auknum mæli byggt á samkeppni um þá þjónustu sem veita þarf.
Fátæktargildrum í lífeyris- og bótakerfum skal útrýmt og hvatar til atvinnuþátttöku skerptir. Bótakerfið skal endurskoðað til að koma í veg fyrir hugsanlega van- eða oftryggingu bótaþega.
Einhver ætti að lesa þetta fyrir hana.
![]() |
Jóhanna: sit út kjörtímabilið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Og enn lýgur stjórnin
3.11.2010 | 20:28
Næsti fundur boðaður á MÁNUDAGINN ?? Það er miðvikudagur - MÁNUDAGINN -
Á meðan "Róm brennur" ætlar stjórnin ekki að halda annan fund fyrr en á MÁNUDAGINN.
Væri ekki nær að halda fund á morgun og fara yfir tillögur Sjálfstæðisflokksins?

Svo mætti halda fund um helgina og fara yfir tillögur stjórnarinnar ef þær eru til.
Á mánudaginn mætti síðan ganga frá samkomulagi um verkefnalista þverpólitískrar stjórnar sem myndi starfa í nokkra mánuði - fram að kosningum í apríl eða maí.
![]() |
Hafa fyrirvara á samráði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Lánlítil - vondauf -
3.11.2010 | 17:41
Eru Heimdellingar gengnir til liðs við ríkisstjórnarflokkana?
LÁNLAUS - VONLAUS - er nær lagi en dugar samt ekki til.
Stjórnlagaþingið - það verður fróðlegt að sjá hvort það skili einhverju - ég tel reyndar að það sé vitlaust staðið að þessu.
Stjórnarskrárbreyting hefur í för með sér hverskyns lagabreytingar - væntalega - verða fulltrúar á þessu þingi í stakk búnir til þess að hafa heildar yfirsýn?
![]() |
Heimdallur telur stjórnlagaþing skrípaleik |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Samráð?????
3.11.2010 | 17:32
![]() |
Sjálfstæðismenn vilja samráð um trúmál |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Snilldartillaga EN
3.11.2010 | 10:54
Eftir að hafa hlustað og horft á sorglega frammistöðu "borgarstjóra" í gær efast ég um framganginn ef hann kemur þar að.
Það var ömurleg og sorgleg lífsreynsla að sitja á pöllunum og hlusta og horfa á þennan veika mann reyna að taka þátt í umræðu sem hann skildi ekki.
![]() |
Vilja að borgarstarfsmenn komi að gerð fjárhagsáætlunar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Jón og Trotskyistinn.
3.11.2010 | 09:54
Meðan Jón ræðst gegn þeim sem sköpuðu honum tækifæri til þes að byggja upp þetta fyrirtæki þá fær hann fyrirgreiðslu hjá Trotskyistanum í Seðlabankanum.
Már sér um sína - en nú hlýtur að opnast fyrir fleiri - annað gengur ekki upp.
![]() |
Gjaldeyrishöftum aflétt gagnvart Össuri hf. |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sjúkraflutningaveður
3.11.2010 | 03:01
Núna skil ég niðurskurðinn - þetta er rakið veður til sjúkraflutninga -
![]() |
Holtavörðuheiði ekki fær fyrr en á morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hvar halda þeir til?
2.11.2010 | 14:28
![]() |
Sendinefnd AGS á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Algjör snilld
2.11.2010 | 12:54
Úr Landsbankanum !!!!!!
Er ekki allt í standi?
Eða vilja stjórnvöld yfirfæra ( millifæra ) glæpaklæki Landsbankans yfir í Íbúðarlánasjóð?
![]() |
Ráðinn framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
AGS - ESB - Norðmenn
2.11.2010 | 12:13
Það hlakkar í norðmönnum - vitandi það að verið er að blóðmjólka þjóðina - skattpíningin algjör og staðið í vegi fyrir öllu sem heitir uppbygging -
það er sú mynd sem þessir aðilar vilja sjá þannig að þjóðin verði kúguð til hlýðni -
Norðmenn stóðu gegn okkur ( eins og venjulega þegar um fiskveiðimál er að ræða - veiðar eða fiskmarkaði ) í makrílmálinu og munu gera það.
"Samstarf norðurlandanna mikilvægt" er vælt á fundum og hátíðisdögum.
Noregur Danmörk Svíþjóð og Finnland hafa ekki nokkurn áhuga á Íslandi nema þá í einhverju eiginhagsmunaskyni.
Frænd- og vinaþjóðatalið er bull.
![]() |
Segir Ísland á réttri leið |