Færsluflokkur: Dægurmál

Hið nýja Ísland

Fjármálaráðherra talar mikið um óráðsíu - glæpsamlega meðferð fjár - klíkur og mútur -

Vissulega fóru bankarnir hroðalega að ráði sínu -

en hvað má þá segja um fimm hundruð milljóna loforð ráðherrans - ÁN ÞESS AÐ ÞINGIÐ SÉ SVO MIKIÐ SEM SPURT - fyrst var það Svavarssmánin - svo aukasamningur - Viljayfirlýsingarforsmánin og svo þetta.

Kanski er hann að fikra sig niður listann í von um að einhversstaðar komi skil sem hann geti leikið sér með.

ALÞINGI FER MEÐ FJÁRMÁLAVALDIÐ - fimm hundruð milljónir geta varla flokkast undir skúffupening ráðherra.


mbl.is Ráðherrar útdeili ekki peningum í sjónvarpsviðtölum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FRAMSAL? - JÁ NÚNA

Vitanlega á að verða við framsalskröfunum - hversvegna að halda þessum mönnum upphér???

Er ekki langur biðlisti?? Hversvegna að eyða miljónum í fangavist þessara manna þegar þeir geta afplánað heima hjá sér - þar sem þeirra bíða enn fleiri dómar.


mbl.is Ákvörðun um framsal felld úr gildi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætlaði að græða rosalega - en

Þessi maður tók þátt í græðgisvæðingunni - keypti lóð og ætlaði að græða

svo kom skellur og þá var hlaupið heim til mömmu.

Ef borgin tekur við lóðinni aftur má með sama hætti gera þá kröfu til bankanna að þeir endurgreiði alla samninga sem gerðir voru og hrundu - Samningar bankanna hrundu vegna aðgerða þeirra sjálfra og fólk situr í súpunni -  Borgin stóð við að afgreiða það sem um var beðið -

hversvegna í ósköpunum ætti borgin að endurgreiða eitt eða neitt?  Endurgreiðir Egill fólki sem er í vandræðum eftir bílakaup hjá honum sem lentu í hruninu????

Hættu þessu væli maður - það lýsir langar leiðir af þessari kæru - það eru að koma kosningar og þú ert að reyna að tilla undir þitt fólk með þessu - það gengur ekki - þar er alltof mikil froða á ferðinni.

Ef stjórnsýslulög - eða lög yfirleitt - fela það í sér að gróðabrallarar eins og þú geti fengið allt endurgreitt þegar þið sjáist ekki fyrir í græðginni - þá eru lögin röng.


mbl.is Brimborg kærir Reykjavíkurborg til umboðsmanns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ha - virkilega

Reyndar vita þetta allir nema ólánssöm ríkisstjórn sem telur sig vera í vinnu hjá bretum og hollendingum.

Takk samt fyrir stuðninginn.


mbl.is Óréttlátt að íslenska þjóðin beri ein kostnaðinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofurvald fjölmiðla -

 

Vald fjölmiðla er mikið - svo mikið að þeir geta snúið þjóðfélagsumræðunni þangað sem þeim hentar.

Ástæðan er sú að við tökum mark á því sem frá þeim kemur - í umræðunni segjum við að við tökum ekki mark á þeim -

Ég ræddi þetta eitt sinn við þaulvanann fréttamann og gagnrýndi rangar "fréttir" og hugsanlegar afleiðingar -  neinei við höfum nú ekki svona mikil áhrif -  nú - hefur þú sagt þeim fyrirtækjum sem auglýsa hjá ykkur að þið hafið ekki áhrif?  Og þar er hundurinn grafinn - fjölmiðlar eru gífurlegt afl.

Fjölmiðlafólk hefur ótrúlega mikil áhrif - þess vegna er undarlegt að lesa um innanbúðarmein þeirra sjálfra.

Væntanlega tekur Helgi Seljan aðila málsins á beinið ( er kanski búinn að því ) nú eða Egill.


mbl.is Öllum spurningum svarað á stjórnarfundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þabbasona

Nötrar allt - - norðaustur af Siglufirði - í Vatnajökli - Eyjafjallajökli og víðar - svo nötrar stjórnarheimilið eftir uppljóstranir Sigurðar Kára um hluta af viljayfirlýsingunni - ætli einhver hafi mælt stjórnarskjálftann.
mbl.is Jörð skelfur norður af Siglufirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Katla - New York - Ísland undir hraun eftir 10 mínútur.

Aðgát er góð - múgæsing er slæm

það má  ekki missa sig í múgsefjun og rugli -

Bandaríkjamenn eiga líka sín eldfjöll - þau geta líka gosið - ekkert síður en Katla -

En Bandaríkjamenn eiga líka annað - brjálaða bílaumferð - glæpatíðni og byssueign umfra aðra auk ótrúlegrar þarfar fyrir það að nota slík verkfæri í tíma og ótíma.

Það eru mun meiri líkur á því að bandaríkjamenn láti lífið af völdum áður talinna þátta en Kötlu - þótt þeir skryppu hingað - færu austur og tækju myndir.

Orð forseta eru blásin upp eins og fjölmiðla er siður.

Ég var erlendis þegar Kröflugosin hófust - þar var sagt frá þeim eins og landið allt væri að fara undir hraun eftir 10 mínútur.

Fjölmiðlar verða að gæta sín.


mbl.is Dýrkeypt yfirlýsing forsetans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigurður Kári Kristjánsson

Sigurður Kári - nýkominn aftur inn á þing gekk framfyrir skjöldu og lagði fram fyrirspurn um viljayfirlýsingu breta - hollendinga og AGS sem jóhanna - steingrímur - gylfi og már skrifuðu einnig undir sem þjónar breta og hollendinga.

18. greinin mun skv. orðum Sigurðar gera fjölda fjölskyldna formlega gjaldþrota - það er skjaldborg ríkisstjórnarinnar - Sigurður tengdi þetta við þau mál sem blasa við sem eru fjármál ríkisins - fjölskyldna og fyrirtækja.

Allt hangir á spýtunni - það er EKKI lausn sem sjs muldraði útúr sér - að fólk geti um skamma hríð búið í húsnæði sem búið er að selja ofan af því.

Reyndar voru viðbrögð steingríms honum lík - í stað þess að svara málefnalega málefnalegri alvarlegri fyrirspurn fór hann í skítkast.

það er ekki skynsamlegt enda var honum svarað af kurteysi og festu af Sigurði Kár.


mbl.is Nauðungaruppboðum ekki frestað frekar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gylfi Magnússon

Ólíkt hafast þeir að

Sigurður Kári reynir að verja heimilin í landinu - Gylfi - sem skrifaði uppá það að það væri í lagi að setja tugþúsundir fjölskyldna á Guð og gaddinn eins og Sigurður orðaði það - vill verja stofnfjáreigendur og peningana þeirra - gróða margra ára -

Hvort er nú mikilvægara - peningagróði eða heimili fólks.

Gylfi er búinn að vera of lengi í slagtogi með sjs og js - - Gylfi - þetta er sóðaskapur hjá þér.


mbl.is Brýnt að leysa vanda stofnfjáreigenda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umhverfismat

Tafarlaust verður Svandís að láta fara fram mat á áhrifum kríunnar á samfélagið -

Meðan á því stendur verður krían að halda sig annarsstaðar. Gott að Svandís yrði þar með henni.


mbl.is Krían komin á Höfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband