Enn einn slepjuklerkurinn
4.10.2010 | 16:14
Legg til að klerkar taki til í þessari svokölluðu þjóðkirkju áður en þeir fara að gapa um aðra hluti -
Ég fyrirgef - segja þeir - nema því aðeins að það henti þeim ekki - svo er hitt -
HANN FÆR SINN DÓM HJÁ HINUM ÆÐSTA DÓMSTÓLI - - bíddu aðeins - gildir það bara um klerka?
Eru ekki allir jafnir??? Hversvegna eru fangelsin full ?- má ekki dæma almenning hinumegin eins og biskup?
AÐSKILNAÐ RÍKIR OG KIRKJU STRAX.
![]() |
Ríkisstjórnin á krossgötum |
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana. |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Engin FORMLEG tengsl - FLANA GAN - réttnefni
4.10.2010 | 16:00
Að sjálfsögðu ekki - þá þyrfti að skjalfesta þau.
Hótanirnar eru væntanlega í óformlegum samræðum -
Hvað ætli hann sé með í laun þessi maður sem vill með aðstoð stjórnarinnsar á Íslandi setja þúsundir fjölskyldna á götuna?
FLANA GAN - mikið rosalegt réttnefni er þetta.
![]() |
Engin formleg tengsl |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Glæpastarfsemi
4.10.2010 | 15:19
Þetta er það sem Sigurður Kári Kristjánsson tók upp á þingi þegar í ljós kom að 18. grein Viljayfirlýsingarinnar fæli þetta í sér.
Það var fátt um svör -
Og núna er það ljóst að AGS ræður ferðinni hér - sjóðurinn krefst aukinnar þátttöku heimilanna en gleymir því að fólk er atvinnulaust þúsundum sama og getur ekki meira -
Legg til að Landsdómur verði undibúinn.
Starfssemi AGS er alltaf sjálfri sér lík - keyra lönd í svaðið og leggja bestu bitana undir bandarísk fyrirtæki.
Förum að ræða við Kína og Rússland í fullri alvöru. Burtséð frá mannréttindabrotum - við gætum þá hugsanlega komið í veg fyrir mannréttindabrot gagnvart okkar eigin fólki.
![]() |
Engin fleiri úrræði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Hjólreiðafólk -
4.10.2010 | 07:24
Ég hef ekk séð annað en að hjólreiðafólk hjóli í báðar átti á einstefnugötum - skelli sér á hjólinu af gangstéttum og yfir gangbrautir - fari þvert yfir götur án þess að gangbrautarmerkingar séu til staðar - hundsi rauð ljós - hvort sem er fyrir ökutæki eða gangandi vegfarendur.
Ég undanskil meginþorra barna sem virðast kunna reglurnar betur en fullorðna fólkið.
Þessi málningarvinna á Hverfisgötunni lagar hvorki þessa þætti né aðra.
![]() |
Telja tilraunina hafa tekist vel |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Hvaða sýning ætli það sé? Heimshagsmunir.
4.10.2010 | 07:17
Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa sent frá sér formlega viðvörun til Bandaríkjamanna sem ferðast til Evrópu, vegna hættu á hryðjuverkum frá al-Qaeda. Í tilkynningunni eru ferðamenn beðnir um að sýna sérstaka varlega á fjölmennum ferðamannastöðum.
Í tilkynningunni er ekkert sérstakt land nefnt á nafn og viðvörunin nær því til Evrópu almennt.
Leyniþjónustur landanna telja sig búa yfir upplýsingum um að al-Qaeda hafi ákveðið að senda byssumenn til Evrópu með það að markmiði að drepa Vesturlandamenn á fjölförnum stöðum.
Er það ekki viðvarandi að þessi samtök myrði Vesturlandabúa - ?
Að koma til Evrópu í þeim tilgangi - er það frétt?
Til hvers að vekja ótta fólks með svona yfirlýsingu - væri ekki nær að uSA geri þá eitthvað í því að stöðva þessi samtök ? Það eru jú bandaríkjamenn sem hafa kallað yfir sig allskonar uppákomur frá þessum samtökum og því miður dregið aðrar þjóðir með sér.
- Myrða þeir hesta, fólk og fé - svo freyðir grimmdin úr opnum ginum - segir í vísukorni - og allt er þetta gert til þess að vernda bandaríska hagsmuni. - út um allan heim -
Það hljóta að vera margvíslegir hagsmunir. Sem reyndar fækkaði þegar herstöðin hér var lögð niður - þá þjónaði það ekki hagsmunum þeirra að viðhalda sæmilegum tengslum við Ísland.
![]() |
Vara við hryðjuverkum í Evrópu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mikill misskilningur
4.10.2010 | 06:51
Eftir því sem ríkið tekur meira til sín í formi skatta dregur það allt afl úr þjóðfélaginu sem kemur síðan fram í minni hagvexti og minni tekjum fyrir ríkið þegar upp er staðið.
Ap leyfa fjármagninu að ávaxtast í hagkerfinu áður en það er skattlagt skilar mun meiri tekjum + færri á atvinnuleysisskrá = fleiri sem borga skatta = enn meiri tekjur fyrir ríkið og minni útgjöld vegna atvinnuleysisbóta.
Það er því mikill misskilningur að hærri skattar séu hagstæðir fyrir ríkið.
![]() |
Skatttekjur aukast meira |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)