Ábyrgð forstjóra.
20.4.2010 | 16:47
Margar sögur ganga um skamman tíma þessa fyrrverandi forstjóra FL Group og greiðslur til hennar.
Spurningin hlýtur að snúast um það ásamt öðru - hversvegna greindi forstjórinn ekki frá þessu frekar en að hóta ( ef það er rétt að hún hafi gert það )og ganga svo frá starfslokasamningi upp á fjárhæð sem venjulegt fólk lætur sig ekki dreyma um - ekki í raunveruleikanum-
Hver var ábyrgð forstjórans?
Og til þess að það sé á hreinu - ég er ekki að nefna þetta til þess að draga úr ábyrgð eigendanna - FJARRI því - en þessu þarf líka að svara.
Staðfestir millifærslu frá FL | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hún greindi frá þessu til réttra aðila, þ.e. stjórnar fyrirtækisins. Stjórnin ákvað að fara ekki með málið lengra.
Það er stjórn sem ber ábyrgð á að fara með málið lengra. Stjórnin ákvað í staðinn að segja af sér.
Ábyrgð eigenda er engin. Þetta var almenningshlutafélag og þó þú hafir átt hlutabréf í félaginu ertu ekki ábyrgur fyrir gjörðum þess. Þeir sem sátu í stjórn voru aftur á móti ábyrgir.
Maelstrom, 20.4.2010 kl. 17:15
Einhvernveginn finnst manni að ef einhver í þessari stöðu hótar lögreglu ( sem ég hef enga sönnun fyrir að hún hafi gert ) þá er undarlegt að ganga bar í burtu með stórfé í vasanum - var ekki talað um yfir 100 milljónir?
Ólafur Ingi Hrólfsson, 20.4.2010 kl. 20:27
Og þú bullar um það sem þú veist ekkert um. Svoleiðis gera sannir sjallar.
Hamarinn, 20.4.2010 kl. 21:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.