Ég trúi því ekki. HVAÐ SPARAST??

Það vinna það margir í heilbrigðiskerfinu að ég trúi því ekki að það sé ekki hægt að senda fleiri þaðan á atvinnuleysisbætur.

Heilbrigðisráðherra verður að taka á honum stóra sínum - setja að minnsta kosti 1500 úr þessu kerfi  á bætur - minka þjónustuna og stofna lífi og heilsu landsmanna í hættu.

Allt annað er óásættanlegt - eða hvað ?

Hversu mikið "sparast " við það að reka t.d. hjúkrunarfræðing? - Greiða þarf atvinnuleysisbætur - viðkomandi verður ekki skattgreiðandi á sama hátt og áður - verður ekki þátttakani í samfélaginu eins og áður - skv. könnunum verður viðkomandi móttækilegri fyrir hverskonar kvillum ( það hefur nefnilega líka sálræn áhrif að lenda í uppsögnum ) sem kallar á hlutdeild ríkisins í læknisþjónustu og lyfjakaupum - álag á það starfsfólk sem eftir situr eykst verulega og leiðir til ofurálags - sem er þó feyki nóg nu þegar.

Það fólk lendir líka mun frekar í veikindum vegna álagsins og þá þarf að kalla inn bakvaktarfólk.

Spurningin er því - hvað sparast -?? Og svo hin -  er verið að auka kostnað í heildina um leið og heilbrigðiskerfinu er rústað??


mbl.is 634 gætu misst störf sín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband