Ætlaði að græða rosalega - en
28.4.2010 | 22:26
Þessi maður tók þátt í græðgisvæðingunni - keypti lóð og ætlaði að græða
svo kom skellur og þá var hlaupið heim til mömmu.
Ef borgin tekur við lóðinni aftur má með sama hætti gera þá kröfu til bankanna að þeir endurgreiði alla samninga sem gerðir voru og hrundu - Samningar bankanna hrundu vegna aðgerða þeirra sjálfra og fólk situr í súpunni - Borgin stóð við að afgreiða það sem um var beðið -
hversvegna í ósköpunum ætti borgin að endurgreiða eitt eða neitt? Endurgreiðir Egill fólki sem er í vandræðum eftir bílakaup hjá honum sem lentu í hruninu????
Hættu þessu væli maður - það lýsir langar leiðir af þessari kæru - það eru að koma kosningar og þú ert að reyna að tilla undir þitt fólk með þessu - það gengur ekki - þar er alltof mikil froða á ferðinni.
Ef stjórnsýslulög - eða lög yfirleitt - fela það í sér að gróðabrallarar eins og þú geti fengið allt endurgreitt þegar þið sjáist ekki fyrir í græðginni - þá eru lögin röng.
![]() |
Brimborg kærir Reykjavíkurborg til umboðsmanns |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ha - virkilega
28.4.2010 | 02:30
Reyndar vita þetta allir nema ólánssöm ríkisstjórn sem telur sig vera í vinnu hjá bretum og hollendingum.
Takk samt fyrir stuðninginn.
![]() |
Óréttlátt að íslenska þjóðin beri ein kostnaðinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ofurvald fjölmiðla -
28.4.2010 | 02:22
Vald fjölmiðla er mikið - svo mikið að þeir geta snúið þjóðfélagsumræðunni þangað sem þeim hentar.
Ástæðan er sú að við tökum mark á því sem frá þeim kemur - í umræðunni segjum við að við tökum ekki mark á þeim -
Ég ræddi þetta eitt sinn við þaulvanann fréttamann og gagnrýndi rangar "fréttir" og hugsanlegar afleiðingar - neinei við höfum nú ekki svona mikil áhrif - nú - hefur þú sagt þeim fyrirtækjum sem auglýsa hjá ykkur að þið hafið ekki áhrif? Og þar er hundurinn grafinn - fjölmiðlar eru gífurlegt afl.
Fjölmiðlafólk hefur ótrúlega mikil áhrif - þess vegna er undarlegt að lesa um innanbúðarmein þeirra sjálfra.
Væntanlega tekur Helgi Seljan aðila málsins á beinið ( er kanski búinn að því ) nú eða Egill.
![]() |
Öllum spurningum svarað á stjórnarfundi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þabbasona
27.4.2010 | 22:08
![]() |
Jörð skelfur norður af Siglufirði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Katla - New York - Ísland undir hraun eftir 10 mínútur.
27.4.2010 | 01:40
Aðgát er góð - múgæsing er slæm
það má ekki missa sig í múgsefjun og rugli -
Bandaríkjamenn eiga líka sín eldfjöll - þau geta líka gosið - ekkert síður en Katla -
En Bandaríkjamenn eiga líka annað - brjálaða bílaumferð - glæpatíðni og byssueign umfra aðra auk ótrúlegrar þarfar fyrir það að nota slík verkfæri í tíma og ótíma.
Það eru mun meiri líkur á því að bandaríkjamenn láti lífið af völdum áður talinna þátta en Kötlu - þótt þeir skryppu hingað - færu austur og tækju myndir.
Orð forseta eru blásin upp eins og fjölmiðla er siður.
Ég var erlendis þegar Kröflugosin hófust - þar var sagt frá þeim eins og landið allt væri að fara undir hraun eftir 10 mínútur.
Fjölmiðlar verða að gæta sín.
![]() |
Dýrkeypt yfirlýsing forsetans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Sigurður Kári Kristjánsson
26.4.2010 | 17:24
Sigurður Kári - nýkominn aftur inn á þing gekk framfyrir skjöldu og lagði fram fyrirspurn um viljayfirlýsingu breta - hollendinga og AGS sem jóhanna - steingrímur - gylfi og már skrifuðu einnig undir sem þjónar breta og hollendinga.
18. greinin mun skv. orðum Sigurðar gera fjölda fjölskyldna formlega gjaldþrota - það er skjaldborg ríkisstjórnarinnar - Sigurður tengdi þetta við þau mál sem blasa við sem eru fjármál ríkisins - fjölskyldna og fyrirtækja.
Allt hangir á spýtunni - það er EKKI lausn sem sjs muldraði útúr sér - að fólk geti um skamma hríð búið í húsnæði sem búið er að selja ofan af því.
Reyndar voru viðbrögð steingríms honum lík - í stað þess að svara málefnalega málefnalegri alvarlegri fyrirspurn fór hann í skítkast.
það er ekki skynsamlegt enda var honum svarað af kurteysi og festu af Sigurði Kár.
![]() |
Nauðungaruppboðum ekki frestað frekar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Gylfi Magnússon
26.4.2010 | 17:09
Ólíkt hafast þeir að
Sigurður Kári reynir að verja heimilin í landinu - Gylfi - sem skrifaði uppá það að það væri í lagi að setja tugþúsundir fjölskyldna á Guð og gaddinn eins og Sigurður orðaði það - vill verja stofnfjáreigendur og peningana þeirra - gróða margra ára -
Hvort er nú mikilvægara - peningagróði eða heimili fólks.
Gylfi er búinn að vera of lengi í slagtogi með sjs og js - - Gylfi - þetta er sóðaskapur hjá þér.
![]() |
Brýnt að leysa vanda stofnfjáreigenda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Umhverfismat
26.4.2010 | 08:28
Tafarlaust verður Svandís að láta fara fram mat á áhrifum kríunnar á samfélagið -
Meðan á því stendur verður krían að halda sig annarsstaðar. Gott að Svandís yrði þar með henni.
![]() |
Krían komin á Höfn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Landráð???
26.4.2010 | 08:26
Sigurður Grétar er að vinna á móti ríkisstjórninni - hann er í uppbyggingu - hún í niðurrifi.
Hann er í atvinnusköpun - stjórnin er að reyna að ná upp atvinnuleysisstiginu.
Eru engin lög sem geta stöðvað þennan mann?
![]() |
Gufubaðið á Laugarvatni opnað næsta sumar? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Skýrslan "góða"
26.4.2010 | 08:23
Í skýrslunni er fjármálaráðherra nefndur til sögunnar -
Ég held að ég muni það rétt að hann og hans flokkur hafi ekki verið ýkja mikið að styðja loforð Framsóknar varðandi sjóðinn. En eins og í samsteypustjórnum - þá þarf að semja -
Framsókn kvartaði yfir því á þingi um daginn að Sjálfstæðisflokkurinn hafi viljað leggja sjóðinn niður -
Þannig að því leitinu er það rétt sem fram kemur að þetta var gert gegn betri vitund.
Því er það nausyn að efna til kosninga og veita Sjálfstæðisflokknum umboð til þess að stjórna hér næstu áratugina án þess að þurfa að standa í samkrulli -
![]() |
Áttu að vita betur en að auka útlán Íbúðalánasjóðs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)