Lýðskrum Framsóknar

Það er leitt að þessi ágæti maður (og Framsókn í heild sinni -) skuli vera lagstur í lýðskrum sem annars hefur verið aðalsmerki Hreyfingarinnar á þessu þingi -

Hvað sem tautar og raular þá er enginn sáttur við að greiða Icesave - deilur um rök með og á móti skipa fólki hinsvegar í andstæða hópi -

Vinnubrögð stjórnarinnar eru svo allt annað og mjög alvarlegt mál. Mál sem þingmenn verða að taka upp ásamt hinum ýmsu gerræðisákvörðunum JS og SJS á s.l. 2 árum. Það er ekki nóg að taka bara Icesave frá hruni - málin eru mýmörg - Magma - Suðurnesjapakkinn allur - lögbrot Svandísar og framkoma hennar og ákvarðandi frá upphafi mengunar hennar í ráðuneytinu - meint ósannindi ráðherra í þinginu - ákvarðanir Árna Páls í fyrra starfi - embættisferill Álfheiðar í Heilbrigðisráðuneytinu - og svo mætti áfram telja.

Sú staðreynd að stjórnin hefði átt að segja af sér eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna er svo enn annar kafli í hörmungarsögu Helstjórnarinnar.


mbl.is „Ég var staddur heima að borða fisk“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýðskrum Framsóknar og Hreyfingarinnar -

Kristján er maður rökfastur og maður sem hefur yfirsýn í þessu máli eftir alla þá vinnu sem hann hefur lagt í að kynna sér það og vinna að því.

ÞAÐ ER ENGINN SÁTTUR VIÐ ÞAÐ AÐ AÐ BORGA - EKKI HELDUR KRISTJÁN ÞÓR.

Hvað heilbrigð skynsemi segir er allt annað mál.

Að bera þetta mál saman við Landhelgisdeilurnar er þvættingur sem stensta enga skoðun.

Hitt er svo enn annað að þetta mál á að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu -

Lýðskrum framsóknar og hreyfingarinnar er þeim til skammar - á þeim bæjum er hafður uppi málflutningur á borð við þann sem Steingrímur J stundaði í stjórnarandstöðu í um 20 ár.

Það var honum til ævarandi skammar - sama gildir um framsókn og hreyfingu í dag.


mbl.is „Hið ömurlegasta mál“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ævilangt fangelsi --

Dramadrottningar af báðum kynjum hafa hrópað á undanförnum mánuðum að níumenningarnir ættu yfir höfði sér allt að því ævilanga fangelsisvist fyrir árásina. Ekki var  hlustað þótt þeim væri bent á fáránleikann í slíkum málflutningi.

Og nú tók fjallið joðsótt og fæddi lítið músarskott.

Æsingurinn í píslarvottum lýðræðisins og fórnarlömbum réttarkerfisins var - eins og það sjálft og allur þeirra málflutningur - LOFT.

Núna koma sjálfsagt yfirlýsingar um að dómari hafi ekki þorað að dæma þau til þyngri refsinga af ótta við viðbrögðin.

Slíkur málflutningur verður með sama merki og sá fyrri - LOFT. Mikilvægi 9 menninganna ( að eigin áliti ) er bara að þeirra áliti - ekki annara.


mbl.is 2 í skilorðsbundið fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýðskrumari -

Þór Saari lofaði góðu þegar hann settist á þing - síðan datt hann í lýðskrum og það að svívirða samþingmenn sína.

Telur sig hafa allt sitt á hreinu þar sem hann sat ekki á þingi fyrir síðustu kosningar.

Málflutningur hans er honum til minkunnar og mátti hann þó ekki við því ( ég er ekki að tala um líkamlega smæð hans ) því það fúafen sem hann virðist sækja framkomu sína í hlýtur að vera fólgið í litlum karakter.

Vonandi sér fólk í gegnum óábyrgann málflutning Þ.S. sem er svo sannarlega EKKI fulltrúi litla mannsins.

Hann er bara lítill kall sem vill vera stór á hinu pólitíska sviði en hefur enga burði til þess.


mbl.is Tillaga um þjóðaratkvæði felld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hin útvöldu og varlamanneskjurnar.

 

 Maður lést eftir að hafa kveikt í sjálfum sér á markaði í Benguerir í Marokkó í dag.

Í Marokkó hefur verið svipað ástand og í öðrum arabalöndum, mikið atvinnuleysi og ójöfnuður og vaxandi krafa um stjórnarfarslegar umbætur, ekki síst frá unga fólkinu en í þessum löndum er ungt fólk orðið í meirihluta.

Það er von að Arabar líti niður á okkur sem ekki erum Múslimar.  Í þeirra augum erum við varla fólk en samt hópast þau burt frá Arabalöndum og til vestrænna ríkja og eru svo með hávær mótmæli ef vestrænu ríkin vilja ekki taka upp siði þeirra.  

Svona til þess að bjarga þessu (að eigin áliti) yfirburðafólki frá okkur þessum (að þeirra áliti)varlamanneskjum legg ég til að þau flytji aftur til síns heima.

 


mbl.is Örvænting í Marokkó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins - loksins -

Þar kom að því -

Hótel í miðbænum -

Þessi langa bið er á enda - loksins geta ferðamenn sem og innfæddir átt stefnumót í miðbænum - bæði innbyrðis og á milli þjóðerna. Á það hefur skort allverulega á undanförnum árum.

Eða hvað?  Er einhver skekkja í þessari mynd??


mbl.is Nýtt hótel við höfnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Röfl.

Fyrir kosningar var vitað að það fólk sem bauð sig fram fyrir esta flokkinn var ekkert með á nótunum um stjórnkerfið eða sögu borgarinnar - hvað þá um einstök fyrirtæki.

Fólk kaus flokkinn samt vegna þess að það var fúlt út í það sem gerðist í alþjóðlegu bankahruni þar sem erlendir aðilar munu hafa tapað 6.500 milljörðum á glæpastarfssemi hóps af Íslendingum sem settu fjármálakerfi Íslands í rúst.

Stór hluti borgarbúa ákvað að refsa fjórflokknum í Reykjavík fyrir vikið og setja gjörsamlega óhæfann mann í stól borgarstjóra MEÐ AÐSTOÐ SAMFYLKINGARINNAR UNDIR STJÓRN DAGS B EGGERTSSONAR.

Það er því algjörlega óraunhæft hjá VG að setja fram einhverjar kröfur.

Vissulega er OR - eins og allt annað að fjarlægjast almenning - þetta fer allt með borgarstjóranum ÞRÁÐBEINUSTU LEIÐ Í MÚMÍNDALINN MEÐ VIÐKOMU Í KARDIMOMMUBÆNUM.

Fólkið kaus þetta yfir sig - til hamingju með það. Eða þannig.


mbl.is Orkuveitan fjarlægist almenning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki segir JS af sér ---

Jóhanna hefur ekki séð ástæðu til þess að segja af sér þrátt fyrir þá staðreynd að í öllum lýðræðisríkjum - nema Ítalíu - færi forsætisráðherra sem hefur margsinnis orðið uppvís að ósanninfum sagt af sér. Framkoma hennar öll og vanhæfi sem forsætisráðherra er öllum - nema henni - ljós. Attaníossar hennar mæra hana samt enn og verða að gera það ef þeir eiga ekki að lenda úti í kuldanum.

Þar sem Svandís Icesavesdóttir horfir upp´þetta sér hún ekki ástæðu til þess að fara -eðlilega - eftir að Icesave kom með þennan líka 500 milljarða samning til okkar hefur honum verið hampað í þjóðfélaginu.

Meira að segja Ínn sjónvarpsstöðin skilst mér að hafi opnað arma sína og veitt honum aðgang með vikulegann  þátt á stöðinni - hafi mér verið sagt satt.

Þannig að - áfram Icesavesdóttir - þótt þú sért dæmd breytir það engu - þú heldur bara þínu striki og heldur áfram að valda þjóðinni tjóni.

Kanski nærðu því sem Icesave tókst ekki - að ná tjóninu upp í 500 milljarða.


mbl.is Telur ekki þörf á afsögn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jafnrétti.

Loksins er komið á jafnrétti í þjóðfélaginu. Ekki bara þetta með að þingmenn stjórnarinnar séu jafnari en aðrir heldur líka hitt -

FJÓRIR RÁÐHERRAR VIRÐA KONUNA EKKI SVARS - FRÁBÆRT - ÞINGMENN ERU OFT Á TÍÐUM EKKI VIRTIR SVARS - SVO HVERSVEGNA VIÐ - ALMENNINGUR ???

Frábært að sjá jafnrétti í framkvæmd - en er þá ekki lag núna - ??  Gefa landsmönnum jafnn rétt á því að lifa í þessu landi - það eru jú kjarasamningar í gangi.

Hvað um það - ég trúði því alltaf að einhversstaðar í fórum Helstjórnarinnar leyndist jafnréttið - það er komið í ljós núna. 


mbl.is Ráðherrar svara ekki fyrirspurn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Merkilegar tölur -

 

Á sama tíma og allt er að fara á hliðina í þjóðfélaginu vegna 47 milljarðanna vegna Icesave ( sem ég hef ekki áhuga á að greiða en kyngi staðreyndum sem blasa við ) sem á að setja allt á hausinn blasir þetta við

 

Hreina skuldastaðan hefur aldrei verið betri

Hrein erlend skuldastaða þjóðarbúsins hefur ekki verið jafn hagfelld frá fyrstu mælingum

Seðlabankans sem ná aftur til ársins 1989. 

Vissulega hefur gífurlega hagstæður viðskiptajöfnuður undanfarna mánuði áhrif - en fjármálaráðherra hefur líka málað allt í mun svartari litum en efni stóðu til - ALLT FRÁ ÞVÍ AÐ HANN SETTIST Í STÓLINN.

Allt hefur það verið gert til þess að réttlæta gerræðishækkanir á 100 skattstofnum ( sumir eru reyndar nýjir ) sem eru að sliga þjóðina.

 

 


mbl.is Munar allt að 53 milljörðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband